Já núna er ekki beint uppáhalds árstíminn hjá mér, allir hestar bara út í haga
að fitubollast. En ég er þá bara að nota tímann í að afla mér meiri upplýsinga um hesta
og allskonar öðruvísi hestamennsku. Ég er mjög hrifin af svona öðruvísi þjálfun eins og smelluþjálfun og að ríða án méla. Ég er búin að vera aðeins að leika mér að kenna Þrá með svona smelluþjálfun og þetta svínvirkar. Hún kann að heilsa og hneigja sig og svo erum við að vinna í spænska sporinu. En þar sem hún er niður á engi núna þá get ég nú lítið annað gert en æft hana smá um helgar þegar ég kem heim því ég fer um hverja helgi til hennar svo hún gleymi nú örugglega ekki smellunum

haha
En svo er þetta með að ríða án méla mér finnst það snilld og væri ég mikið til í að geta keypt mér svona méllaust beisli, en það er bara svo a*dýrt... er búin að vera skoða allskonar video af fólki sem þjálfar hestana án beislis. Hérna er eitt sem mér fannst alveg magnað ekki einu sinni með hnakk heldur
okey þetta er kanski pínu langt en alveg þess virði að horfa á það.
Maður þarf alls ekki alltaf þetta taumaskak, ef maður temur hestinn vel og hefur gott
samband við hann þá er bara alls ekkert mál að stjórna honum á þennan hátt.
Ég ætla allavega að reyna að stefna að þessu

gangi mér vel hehemm....